Landsnet er um þessar mundir að halda fundaröð um kerfisáætlun, fyrsti fundurinn var haldinn þann 15. maí síðast liðinn á Nauthól í Reykjavík var fundurinn í beinu streymi á heimasíðu Landsnets sem og facebook síðu. Fundurinn var einnig tekinn upp og er sú upptaka hér að neðan.
Þann 7. febrúar síðastliðinn fór fram kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð Suðurlands, fór fundurinn fram í gegnum samskiptaforritið Teams. Nú má horfa á upptökuna sem má finna hér. Á fundinum fór sviðstjóri þróunarsviðs SASS, Þórður Freyr Sigurðsson, yfir hvernig sjóðurinn virkar og hvað það er sem að umsækjendur þurfa að huga að við gerð umsókna í sjóðinn.
Þann 8. febrúar síðastliðinn bauð Svæðisskipulagsnefnd fyrir Suðurhálendið til opins kynningarfundar á tillögu sinni að svæðisskipulagi fyrir Suðurhálendið, var fundurinn haldinn á Hótel Selfossi og var honum einnig streymt í gegnum fjarfundarbúnað. Var fundurinn tekinn upp og er hægt að horfa á hann hér að neðan.
Morgunverðafundur SFS – 11.3.20 Frummælendur eru Svanfríður Jónasdóttir ráðgjafi og fyrrverandi þingmaður, Sveinn Agnarsson prófessor við viðskiptafræðideild HÍ, Pétur H. Pálsson framkvæmdastjóri Vísis hf., og Ásdís Kristjánsdóttir forstöðumaður efnahagssviðs SA. Fundinn má sjá hér.
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) boða til opins fundar um gagnsæi í sjávarútvegi, miðvikudaginn 26. febrúar. Frummælendur eru Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands og Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Þau munu reifa hugmyndir sínar um hvernig auka megi gagnsæi í sjávarútvegi. Að því loknu fara fram
Það er ekki langt síðan að það var töluvert vandamál að setja upp fjarfundi. Þá var sérstaklega erfitt ef átti að hafa myndfundi, deila skjám eða teikna á töflu. Upplifunin var oft á tíðum óþægileg og fólk nennti hreinlega ekki að standa í þessu. En nú er öldin önnur með tólum eins og Microsoft Teams.
Þann 6. febrúar 2020 hélt Nýsköpunarnefnd FKA í samstarfi við Suðurlandsdeild FKA málþing á Skyrgerðinni í Hveragerði, þar sem spurt var “Get ég fjármagnað verkefnið mitt”. Þær Ragnhildur Ágústdóttir stofnandi Icelandic Lava Show, Hulda Brynjólfsdóttir stofnandi Uppspuna, Smáspunaverksmiðju og Erna Hödd Pálmadóttir stofnandi Beauty by Iceland sem allar hafa hlotið styrk í gegnum Uppbyggingarsjóð, kynntu
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) boða til opins fundar um umhverfismál í sjávarútvegi, miðvikudaginn 4. mars, undir yfirskriftinni, Hvernig getur sjávarútvegur gert betur í umhverfismálum? Fundurinn verður í veitingahúsinu Messanum í húsi Sjóminjasafnsins á Granda og hefst kl. 9:00 og stendur til kl. 11:00. Húsið verður opnað kl. 8:30 og boðið er upp á morgunverð. Til að sjá