Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga verður haldið 1. og 2. nóvember nk. skv. eftirfarandi dagskrá. Þar verða haldnir aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Sorpstöðvar Suðurlands. Ársþingið munu sækja um 70 sveitarstjórnarmenn og embættismenn sveitarfélaganna auk gesta. Meðal gesta ársþingsins fundarins verða Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og þingmenn kjördæmisins.
Meðal fyrirlesara á þinginu verður Anna Margrét Guðjónsdóttir forstöðumaður Brusselskrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem mun flytja fyrirlestur um áhrif ESB á íslensk sveitarfélög:
Dagskrá ársþingsins er eftirfarandi:
Fimmtudagur 1. nóvember
9.30 – 10.00 Skráning fulltrúa
10.00 – 10.10 Setning
10.10 – 12.00 Aðalfundur SASS
12.00 – 13.00 Hádegisverður
13.00 – 13.30 Ávörp gesta
13.30 – 15.20 Aðalfundur Skólaskrifstofu Suðurlands
15.30 – 17.00 Aðalfundur Sorpstöðvar Suðurlands
17.00 – 19.00 Nefndastörf
Föstudagur 2. nóvember
8.00 – 10.00 Áframhald nefndastarfa
10.00 – 10.30 Kaffihlé
10.30 – 12.00 Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands
12.00 – 13.00 Hádegisverður
13.00 – 14.30 Aðalfundur Atvinnuþróunarfélags Suðurlands
14.30 – 15.30 Aðalfundur SASS, framhald
15.30 – 17.00 Umræður um nefndaálit og afgreiðsla þeirra
Almennar umræður
17.00 Slit ársþings
Hugsanlegt er að tímasetningar færist framar ef aðalfundir taka styttri tíma en gert er ráð fyrir í dagskrá.
Einnig er gerður fyrirvari um aðrar hugsanlegar breytingar á dagskránni.