Markmið
Dreifing og stýring ferðamanna um Suðurland með skilgreindum áhuga- og áningarstöðum byggða á umhverfisvænum og þematengdum samgöngum.
Verkefnislýsing
Samantekt á skilgreindum ferðaleiðum og skipulagning nýrra, og skilgreina þætti sem slíkar leiðir þurfa að uppfylla. Ferðamannaleiðirnar skulu vera fyrir fjölbreyttan ferðamáta. Einnig skal draga fram helstu tegundir ferðaþjónustu á Suðurlandi á leiðunum út frá þemum/markhópum. Leiðarnar verða kortlagðar skv. þrískiptingu Suðurlands (skv. áfangastaðaáætlun) og birtar á kortavef SASS og nýttar til kynningar fyrir ferðamenn á vef Markaðsstofu Suðurlands. Einnig verður hugað að að samræma merkinga ferðaleiðanna.
Tengsl við sóknaráætlun 2015-2019
Verkefnið tengist beint fimm af sex megin áherslum Sóknaráætlunar Suðurlands:
- Auka samvinnu á milli sveitarfélaga í sem flestum málefnum
- Vinna að heildrænni kortlagningu á náttúru, mannauði og menningu á suðurlandi og draga fram sérstöðu einstakra svæða
- Skapa jákvæða ímynd af Suðurlandi sem byggir á gæðum og hreinleika
- Vinna að umhverfisvakningu með sjálfbærni að leiðarljósi og auka sjálfbæra nýtingu á orku og auðlindum
- Auka fjölbreytni í atvinnulífi, mannlífi, menningu og menntun
Lokaafurð
Fjöldi nýrra þematengdra leiða sem aðgengilegar verða í kortagrunn SASS og á vef og öðru kynningarefni Markaðsstofu Suðurlands.
Verkefnastjóri
Dagný Hulda Jóhannsdóttir ráðgjafi og verkefnastjóri á vegum SASS
Framkvæmdaraðili
SASS og Markaðstofa Suðurlands
Samstarfsaðili
Hagaðilar á Suðurlandi sem vilja taka þátt.
Heildarkostnaður
4.000.000.-
Þar af framlag úr Sóknaráætlun
4.000.000.-
Ár
2019
Tímarammi
Unnið á árinu 2019
Árangursmælikvarði/ar
A.m.k. ein leið í hverjum flokki (akandi umferð, göngu-, reið- og hjólaleiðir ) á hverju svæði (þrískiptu Suðurlandi), ný afþreying, uppbygging á ferðaleiðum/samgönguleiðum. Jafnari dreifing ferðamanna um svæðið.
Staða
Í vinnslu
Staða verkefnis
Teknar voru saman göngu- og hjólaleiðir á Suðurlandi, verið er að vinna í að flokka þær og skilgreina hvaða leiðir fara inn á kortavef SASS – enn í vinnslu.
Útbúnar voru handbækur um gerð göngu- og hjólaleiða og voru þær sendar á alla sveitarstjóra sem og birtar á heimasíðu Markaðsstofu Suðurlands.
Unnið var að gerð einnar nýrra ferðaleiðar á Suðurlandi, Vitaleiðin. Vitaleiðin nær frá Selvogi í Ölfusi í vestri að Knarrarósvita í Árborg í austri. Var ferðaleiðin unnin í þéttri samvinnu með sveitarfélögunum Árborg og Ölfus, einnig komu rekstraraðilar á leiðinni að vinnunni. Vitaleiðin er um 49 km löng og bíður upp á fjölbreytta ferðamöguleika gangandi, hjólandi, hlaupandi eða ríðandi á hestum. Einnig er hægt að aka hana á milli staða. Leiðin bíður upp á fjölbreytta upplifun í náttúru, fuglalífi, menningu, afþreyingu, mat og gistingu. Leiðin er tilvalin 3ja til 5 daga leið þar sem þorpin þrjú Þorlákshöfn, Eyrarbakki og Stokkseyri eru heimsótt. Vitaleiðin heimasíða: www.south.is/is/thettbyli/vitaleidin
Hér má nálgast kort af Vitaleiðinni:
Vitaleidin_2020_Kort_loka