Birna Dröfn Birgisdóttir hélt nýverið fjórða fyrirlesturinn í fyrirlestraröðinni Forvitnir frumkvöðlar. Í erindinu fjallaði hún um hversu algengt það er að fólk velji auðveldustu lausnina á áskorunum í stað þess að leita bestu lausnarinnar. Hún sýndi fram á hvernig frumkvöðlar geta þjálfað lausnamiðaða hugsun til að finna nýjar leiðir og skapa verðmæti.
Birna fór jafnframt yfir helstu hindranir sem standa í vegi fyrir skapandi hugsun og hvernig hægt er að yfirstíga þær með markvissum aðferðum. Þá ræddi hún einnig hvernig gervigreind getur ýtt undir sköpunargleði, hjálpað við að brjóta niður hindranir og þjálfað sköpunarvöðvann á markvissan hátt.
Birna Dröfn veitti þátttakendum innblástur og markvissar æfingar til að æfa sköpunarvöðvann, enda brennur hún fyrir þessu málefni sem skein heldur betur í gegn á erindinu. Hægt er að hlusta á erindið hér
Næstu hádegiserindi í röðinni ,,Forvitnir frumkvöðlar“ eru:
- 6. maí – Viðskiptaáætlun á mannamáli
- 3. júní – Stofnun og rekstur smáfyrirtækja//ólík rekstarform
Við höldum svo áfram í september með fleiri spennandi fyrirlestra.
Fræðsluhádegi landshlutasamtakanna
– Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar
Landshlutasamtökin; Austurbrú, SASS, SSNE, SSNV, SSS, SSV og Vestfjarðarstofa standa að mánaðarlegum fræðsluerindum fyrsta þriðjudag í mánuði. Fjölbreytt fræðsla í boði fyrir frumkvöðla og önnur áhugasöm um nýsköpunarsenuna. Fræðsluhádegin eru öllum opin og að kostnaðarlausu!
Erindin verða haldin á Teams og hefjast þau kl.12:00. Ráðgert er að hvert erindi verði ekki lengra en 45 mínútur. Í kjölfar hvers erindis gefst kostur á að leggja fram spurningar.