fbpx

Á næsta fyrirlestri „Forvitinna frumkvöðla“ þann 1. apríl munum við kafa ofan í hvernig frumkvöðlar geta þjálfað og nýtt skapandi og lausnamiðaða hugsun til að finna nýjar leiðir og skapa verðmæti.
Við skoðum hindranir sem oft standa í vegi fyrir skapandi hugsun og hvernig hægt er að yfirstíga þær með markvissum aðferðum. Einnig munum við kanna hvernig gervigreind getur ýtt undir sköpunargleði og stutt við nýsköpun. Með hagnýtum dæmum og rannsóknum fá þátttakendur innsýn í hvernig þeir geta eflt sköpun í eigin verkefnum með því að blanda saman sinni eigin sköpun og gervigreind.
Birna Dröfn Birgisdóttir mun leiða okkur í gegnum þetta spennandi efni. Hún hefur brennandi áhuga á skapandi og lausnamiðaðri hugsun og hvernig gervigreind getur ýtt undir þá hæfni. Birna hefur rannsakað sköpunargleði í doktorsnámi sínu, þjálfað hundruð einstaklinga og haldið TEDx-fyrirlestur um efnið. Hún er alþjóðlegur fyrirlesari og stofnandi Bulby hugbúnaðar sem auðveldar og styttir hugarflugsfundi með hjálp gervigreindar.

Skráning á fundinn hér og hlekkur á fundinn er hér.

Fræðsluhádegi landshlutasamtakanna
– Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar

Landshlutasamtökin: Austurbrú, SASS, SSNE, SSNV, SSS, SSV og Vestfjarðarstofa standa að mánaðarlegum fræðsluerindum fyrsta þriðjudag í mánuði. Fjölbreytt fræðsla í boði fyrir frumkvöðla og önnur áhugasöm um nýsköpunarsenuna. Fræðsluhádegin eru öllum opin og að kostnaðarlausu!
Erindin verða haldin á Teams og hefjast þau kl.12. Ráðgert að hvert erindi verði ekki lengra en 45 mínútur. Í kjölfar hvers erindis gefst kostur á að leggja fram spurningar.

Takið frá tíma:
1. apríl – Skapandi hugsun
6. maí – Viðskiptaáætlun á mannamáli
3. júní – Stofnun og rekstur smáfyrirtækja//ólík rekstarform

Við höldum svo áfram í september með fleiri spennandi fyrirlestra.

Hvað eru landshlutasamtökin?
Öll sveitarfélög á Íslandi eru aðilar að landshlutasamtökunum, en Landshlutasamtök sveitarfélaga eru hagsmunasamtök sveitarfélaga á tilgreindum starfssvæðum. Meginhlutverk allra landshlutasamtaka er að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum.