fbpx
Framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna

Innviðaráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna, sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036, aðgerð A.10 – Almenningssamgöngur á milli byggða. Markmiðið er að styðja við áframhaldandi þróun almenningssamgangna milli byggða, m.a. til að tengja ýmsa sérakstursþjónustu við almenningssamgöngur. Til ráðstöfunar verða allt að 27 milljónir kr.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má finna á vef Byggðastofnunar hér

Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 5. maí 2025.