Í vetur mun Hreiðrið frumkvöðlasetur standa fyrir mánaðarlegum hádegishittingi í
Fjölheimum á Selfossi. Hittingurinn mun innhalda stutt innlegg frá gesti mánaðarins og almennt spjall og tengslamyndun.
Fyrsti hittingurinn fer fram þann 7 september nk. og mun Fjóla S. Kristinsdóttir nýr bæjarstjóri Árborgar koma og fjalla um stefnu sveitarfélagsins í atvinnu- og nýsköpunarmálum.
Viðburðurinn hefst kl. 12 og mun Birtastarfsendurhæfing bjóða upp á súpu á vægu verði svo enginn fari svangur út.
Staðsetning: Fjölheimar – Tryggvagötu 13, 2. hæð, 800 Selfoss.