Miðvikudaginn 12.október n.k.mun Einar Bárðarson rekstrarstjóri Reykjavík Excursions halda fyrirlestur í Fjölheimum um hnattræn tækifæri í ferðaþjónustu.
Fyrirlesturinn er partur af námskeiði nemenda á ferðamálabrú Háskólafélags Suðurlands en er jafnframt opinn almenningi.
Fyrirlesturinn hefst kl. 13:00 í stofu 205 í Fjölheimum, Tryggvagötu 13, Selfossi.