Taktu þátt í að móta umhverfis – og auðlindastefnu Suðurlands
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga boða til opinna samráðsfunda fyrir alla áhugasama, nú í upphafi vinnu við mótun umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Suðurland. Verkefnið er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Suðurlands á vegum samtakanna.
Viðfangsefni fundanna er að greina helstu tækifæri og álitamál á sviði umhverfis- og auðlindamála. Einnig verða kynnt áhugaverð fordæmi í þessum
efnum.
Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
- Höfn í Hornafirði, 29. ágúst, kl. 16:00 – 18:00. Nýheimar – kaffiveitingar.
- Hveragerði, 4. september, kl. 12:00 – 14:00. Hótel Örk – súpufundur.
- Vík, 5. september, kl. 11:00 – 13:00. Hótel Vík – súpufundur.
- Flúðum, 5. september, kl. 16:00 – 18:00. Hótel Flúðir – kaffiveitingar.
- Hvolsvelli, 11. september, kl. 16:00 -18:00. Félagsheimilinu Hvoli – kaffiveitingar.
- Vestmannaeyjum, 12. september, kl. 11:30 – 13:30. Þekkingarsetri Vestmannaeyja – súpufundur.
- Kirkjubæjarklaustri, 12. september, kl. 20:00 – 22:00. Félagsheimilið Kirkjuhvoll – kaffiveitingar.
Nánari upplýsingar má sjá á vef SASS: sass.is/umhverfisogaudlindastefna. Þar er einnig skráning á fundina.