fbpx

 

Hvaða þjónusta skiptir þig máli? Þjónustukönnun Byggðastofnunar

  • Hvaða þjónustu nota íbúar og hvert fara þeir til að sækja þá þjónustu?
  • Hvaða þjónustu þarf helst að bæta við eða efla?
  • Hvaða þjónustu óttast íbúar helst að missa úr heimabyggð?

Nú fer fram könnun sem Maskína framkvæmir fyrir hönd Byggðastofnunar meðal íbúa um land allt (utan höfuðborgarsvæðis) vegna rannsókna á þjónusutusókn og væntingum til breytinga á þjónustu. 

Könnunin er liður í að skilgreina þjónustusvæði og fá mynd af viðhorfum íbúa mismunandi svæða til breytinga á þjónustu. Út frá sjónarmiði byggðamála og landshlutanna er þátttaka íbúa í könnuninni mjög mikilvæg. Sérstaklega er mikilvægt að fá svörun úr dreifðum byggðum landsins svo unt verði að vinna með niðurstöðurnar þannig að réttust mynd fáis einnig af þjónustusókn íbúa á fámennum byggðarlögum. niðurstöður munu nýtast í vinnu við eflingu byggða um land allt.

 

Áætlað er að það taki um 10 mínútur að svara. Könnunin er á Íslensku, ensku og pólsku. 

Smelltu á mynd eða hlekkinn til að taka þátt: Þjónustukönnun 

 

Vakin er athygli á því að rafræn skilríki eru notuð við innskráningu til að tryggja áreiðanleika könnunarinnar en öllum persónulegum upplýsingum er eytt áður en úrvinnsla gagna hefst. 

Nánari upplýsingar um þjónustukönnunina má finna á heimasíðu Byggðastofnunar.