fbpx

Ingunn Jónsdóttir nýr framkvæmdastjóri SASS

Stjórn samtaka sunnlenskra sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum þann 19. mars 2025 að ráða Ingunni Jónsdóttir sem nýjan framkvæmdastjóra SASS. Ráðningarferlið var leitt af fyrirtækinu Intellecta og var Ingunn metin hæfust til að gegna starfinu af 31 umsækjanda. 

Stjórn og starfsfólk SASS býður Ingunn Jónsdóttur hjartanlega velkomna til starfa.