Ráðstefna verður haldin á Hótel Vík mánudaginn 27 október á vegum Kötlu jarðvangs og nefnist:
Katla jarðvangur – Horft til framtíðar
Dagskrá
11.00 Fundarsetning: Eiríkur Vilhelm Sigurðsson forstöðumaður Kötluseturs
11.05 Aðdragandi og upphaf Kötlu jarðvangs: Steingerður Hreinsdóttir rekstrarstjóri Kötlu jarðvangs
11.20 Forvitnir ferðalangar og lesturinn í litbrigði jarðar: Ólöf Ýrr Atladóttir Ferðamálastjóri
11.40 Í ríki Kötlu – jarðvangur eldgosa og jökulhlaupa: Magnús Tumi Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði
12.10 Hádegisverður – Súpa í boði Kötlu jarðvangs
13.00 Af hverju jarðvangur – sjónarhorn annara jarðvanga eða tilvonandi jarðvanga: Edda Arinbjarnardóttir verkefnisstjóri Sögu jarðvangs og Eggert Sólberg Jónsson verkefnisstjóri Reykjanes jarðvangs
13.30 Hvað hefur áunnist í Kötlu jarðvangi: Rannveig Ólafsdóttir og Jóna Björk Jónsdóttir sérfræðingar hjá Kötlu jarðvangi
14.00 Ferðaþjónusta í Kötlu Jarðvangi – Hvert stefnum við? Hvert viljum við stefna?: Æsa Gísladóttir eigandi Vik Hostel
14.15 Skiptir Katla jarðvangur ferðaþjónustuna máli?: Björg Árnadóttir framkvæmdarstjóri South Iceland Adventure
14.30 Hvar liggja tækifæri í nýsköpun í Kötlu jarðvangi að mati ferðaþjónustuaðila á svæðinu?: Guðlaug Ósk Svansdóttir ferðamálafræðingur
14.50 Kaffi og umræður
15.45 Hvað er framundan hjá Kötlu jarðvangi?: Sigurður Sigursveinsson framkvæmdarstjóri Háskólafélags Suðurlands
16.00 Fundi slitið
Eftir fund verður farið að Víkurfjöru þar sem uppbygging á einum af fjölmörgum áningarstöðum jarðvangsins hefur átt sér stað. Einnig verður komið við hjá því sögufræga skipi Skaftfelling þar sem boðið verður upp á snarl úr héraði.
http://www.katlageopark.is/um-kotlu/