Skipulagsstofnun og umhverfis- og auðlindaráðuneytið mun kynna nýja skipulagsreglugerð á Hellu, safnaðarheimili Oddakirkju, Dynskógum 8 mánudaginn 4. mars kl. 10-12.
Á fundinum munu fulltrúar Skipulagsstofnunar og ráðuneytisins gera grein fyrir nýrri skipulagsreglugerð og svara fyrirspurnum.
Gert er ráð fyrir tveggja klukkustunda fundi fyrir kynningu og umræður og er fundurinn öllum opinn.