Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Fjarskiptasjóður bjóða til kynningarfundar á netinu miðvikudaginn 12. maí kl. 13:00-14:00 um einstakan árangur af landsátakinu Ísland ljóstengt á síðustu árum. Átakið hefur þegar bylt forsendum búsetu og atvinnurekstrar í sveitum landsins.
Fundurinn er haldinn í tilefni af úthlutun síðustu styrkja til sveitarfélaga á grundvelli landsátaksins Ísland ljóstengt um ljósleiðarauppbyggingu í dreifbýli utan markaðssvæða.
Þá verður kynnt ný skýrsla um samfélagslegan ávinning af Íslandi ljóstengt fyrir dreifbýli landsins.
Dagskrá
- 13:00 – Samfélagslegur ávinningur af verkefninu Ísland ljóstengt
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
- 13:15 – Ísland ljóstengt – nálgun og umfang
Páll Jóhann Pálsson, formaður stjórnar fjarskiptasjóðs
- 13:25 – Reynslusögur frá sveitarfélögum
- 13:35 – Skýrsla um samfélagsleg áhrif af verkefninu Ísland ljóstengt
Vífill Karlsson, hagfræðingur
- 13:50 – Umræður og spurningar
- Fundarstjóri: Óstaðfest
Skráningu lýkur þriðjudaginn 11. maí kl. 17:00. Þeir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn sem haldinn er á Teams.
Skráning á fundinn fer fram hér.