Landstólpinn Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar er viðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Viðurkenningin er hvatning, því hugmyndin að baki er að efla skapandi hugsun og bjartsýni.
Landstólpinn er veittur einstaklingi, fyrirtæki eða hóp/verkefni á vegum fyrirtækis eða einstaklinga, fyrir framtak sem vakið hefur athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags.
Hafa má í huga hvort viðkomandi hafi:
- gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða viðkomandi svæði
- aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu
- aukið samstöðu og jákvæðni íbúa
- dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni
Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar. Nauðsynlegt er að rökstuðningur fylgi tilnefningunni.
Viðurkenningunni fylgir listmunur hannaður af íslenskum listamanni.
Tillögur sendist á netfangið: landstolpinn@byggdastofnun.is
Nánari upplýsingar gefur Eva Pandora Baldursdóttir, s.4555400.
Frestur til að til að koma tillögum til skila rennur út föstudaginn 25. mars 2020