Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir Lóu nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina, en opnað hefur verið fyrir umsóknir.
- Auka nýsköpun á landsbyggðinni
- Styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni
- Stuðla að uppbyggingu vistkerfis fyrir nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðlastarf á forsendum svæðanna
Áður en umsókn er send inn er mikilvægt að kynna sér efni handbókar sem finna má á upplýsingasíðu Lóu nýsköpunarstyrkja.
Opið er fyrir umsóknir til og með 11. maí nk.