Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði fyrir árið 2015. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að verðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur nr. 577/2014. Samkvæmt úthlutunarreglunum er heimilt að veita styrki úr sjóðnum til:
- Vðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og mannvirkjum.
- Viðhalds annarra mannvirkja sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.
- Bygginarsögulegra ransókna, þar með talið skráningu húsa og mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær.
Umsóknir eru metnar með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleiðarinnar.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a úthlutunarreglur, er að finna á heimasíðu Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2014. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun.