SASS stendur fyrir námskeiði fyrir aðila sem starfa í ferðaþjónustu
Fjallað verður um hagnýtar markaðsaðgerðir, virkni tripadvisor.com og facebook.com ofl.
Að námskeiði loknu munu þátttakendur hafa skýr svör við eftirfarandi spurningum:
Hverjar eru mikilvægustu markaðsaðgerðirnar fyrir mitt fyrirtæki?
Á hverju byggja aðgerðir sem eru bæði einfaldar og áhrifamiklar?
Hvernig finn ég tíma til að sinna markaðsmálum?
Markmiðið er að þátttakendur geti strax byrjað að auka sýnileika sinn á netinu, með áherslu á þær umsagnir sem viðskiptavinir veita þeim m.a. tripadvisor.com
Námskeiðið stendur yfir í 6 vikur og hefðst þriðjudaginn 7. október með fjarnámi. Þátttakendur fá vikulega send kennslumyndbönd og verkefnablöð .