fbpx

Saman gegn sóun | Grænn lífstíll, ráð og fræðsla um minni sóun.

Umhverfisstofnun hefur verið falið að endurskoða stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir – Saman gegn sóun. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að fá innsýn í sjónarmið fólks, fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana um land allt.

Þann 19. júní kl. 10-12 verður Umhverfisstofnun með opinn fund á Midgard Base Camp þar sem þátttakendur fá fræðslu um þau tækifæri sem liggja í bættri nýtingu og minni sóun og færi á að koma með tillögur að aðgerðum.

Frítt inn og léttar veitingar – fundinum verður einnig streymt.

Hér er viðburðurinn á Facebook
Skráning er nauðsynleg – sjá hér

HVAÐ ERU ÚRGANGSFORVARNIR?

  • Hvernig komum við í veg fyrir að verðmæti verði að rusli?
    • Hvernig nýtum við hluti, efni og auðlindir betur og lengur?
    • Hvernig getur fjármagn og regluverk hjálpað fyrirtækjum í átt að minni sóun?
    • Hvaða ávinning hefur þetta allt saman í för með sér fyrir fyrirtæki og fólk?

Þetta er kjarninn í stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir – Saman gegn sóun.

FYRIR HVER?

  • Öll!
    • Starfsfólk fyrirtækja
    • Starfsfólk sveitarfélaga og stofnana
    • Nemendur
    • Almenning

AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ MÆTA?

  • Tækifæri til að hafa bein áhrif á stefnu stjórnvalda og koma sjónarmiðum þínum eða þíns vinnustaðar á framfæri
    • Fræðsla um hringrásarhagkerfið
    • Innblástur frá fyrirtækjum á svæðinu
    • Tækifæri til að spyrja sérfræðinga spurninga
    • Tækifæri til að ræða við fólk og fyrirtæki af svæðinu um þessi mál

DAGSKRÁ

Á dagskrá eru erindi frá Saman gegn sóun, SASS, Flúðasveppum og Midgard. Eftir erindin tekur við samtal um aðgerðir.