Verslunarmannafélag Suðurlands boðar til opins fundar í sal félagsins á Austurvegi 56, Selfossi, 3. hæð, fimmtudagskvöldið 26. febrúar frá kl. 20:00 til 22:00 til að ræða málefni nýrrar Ölfusárbrúar og staðsetningu hennar.
Frummælendur verð:
- Guðmundur Valur Guðmundsson, verkefnisstjóri Vegagerðarinnar.
- Svanur Bjarnason, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Suðursvæði.
- Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar,
- Guðmundur Lárusson, bóndi í Stekkum.
- Kjartan Björnsson, bæjarfulltrúi í Árborg.
- Erla Gísladóttir, kaupmaður á Selfossi
Umræður og fyrirspurnir á eftir. Fundarstjóri verður Gils Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurlands. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir.