Markmið
Markmið verkefnisins er að stuðla að aukinni og sjálfbærri matvælaframleiðslu og -vinnslu á Suðurlandi með bættri nýtingu endurnýjanlegra auðlinda svæðisins og hámarka samfélagsleg og efnahagsleg tækifæri því tengdu. Þannig eru styrkleikar svæðisins ásamt þekkingu og núverandi starfsemi nýtt til að skapa ný tækifæri til að vinna á lausnarmiðaðan hátt gegn helstu áskorunum nútímans. Í verkefninu verður stutt við uppbyggingu matvælaframleiðu og líftækni á svæðinu ásamt því að gera sveitarfélögum, núverandi matvælaframleiðendum og nýjum fyrirtækjum kleift að byggja upp aukna framleiðslu á svæðinu ásamt því að þróa nýjar aðferðir og skapa matvælaframleiðslu með sérstöðu á heimsvísu.
Sértæk markmið verkefnisins eru meðal annars að:
- Koma á fót þverfaglegum samstarfsverkefnum innan og utan svæðisins
- Að sækja erlenda þróunarstyrki inn á Suðurland
- Efla þekkingu og menntun á sviði matvælaframleiðslu á Suðurlandi
- Greina, þróa og stuðla að uppbyggingu innviða fyrir matvælaframleiðslu framtíðarinnar á Suðurlandi
- Kynna Suðurland sem fjárfestingarkost fyrir matvælaframleiðslu framtíðarinnar
Verkefnislýsing
Verkefnið byggir á samstarfi sveitarfélaga á Suðurlandi, Landsvirkjunar, Landsbúnaðarháskóla Íslands og matvælaráðuneytis. Þannig er ætlunin að leiða saman íbúa svæðisins, leiðandi fyrirtæki í orkuvinnslu á svæðinu og þekkingarsamfélagið. Gert er ráð fyrir virku samstarfi út verkefnið og með því að draga saman ólíka hagaðila sé mögulegt að skapa ný tækifæri sem byggja á þverfaglegri nálgun.
Til verkefnisins hafa verið ráðnir þrír starfsmenn. Annar sérfræðingur í atvinnuþróun og nýsköpun í græna hagkerfinu en hinn sérfræðingur í rannsóknum og fjármögnun rannsókna- og þróunarverkefna m.a. til að auka getu svæðisins til að taka þátt í alþjóðlegum rannsóknarverkefnum og draga inn á svæðið aukna þekkingu á tækifærum í nýsköpun á sviði matvælaframleiðslu og líftækni. Þriðji starfsmaðurinn er verkefnaráðinn.
Verkefnið í heild mun leiða saman ýmsa hagsmunaaðila og leggja áherslur á að skapa tækifæri fyrir bæði ný og starfandi fyrirtæki á svæðinu til að horfa til aukins samstarfs í matvælaframleiðslu og áframvinnslu þess hráefnis sem til er á svæðinu.
Tengsl við sóknaráætlun 2020-24
Verkefnið fellur einkar vel að sóknaráætlun, bæði fyrir yfir- og undirmarkmið áætlunarinnar. Samstarfsverkefnið mun nálgast viðfangsefnið bæði út frá megináherslum áætlunarinnar um atvinnu og nýsköpun en ekki síður hafa víðtæk áhrif á hina áhersluþættina, umhverfi og samfélag.
Tengsl við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Verkefnið er með víðtæka skírskotun í Heimsmarkmiðin enda er matvælaframleiðsla ein af þeim grunn greinum sem hafa bæði mikil áhrif á hvernig mannkynið stendur gagnvart sjálfbærri þróun.
Árangursmælikvarðar
- Fjöldi nýskráðra fyrirtækja á svæðinu á sviði matvælaframleiðslu, þjónustu og rannsókna.
- Fjármagn í nýsköpun á verksviði verkefnisins á svæðinu
- Fjöldi nýrra starfa sem krefjast sérmenntunar
- Fjöldi viðburða tengdir verkefninu
- Fjöldi samstarfsverkefna fyrirtækja á sviði matvælaframleiðslu
- Fjöldi lokaverkefna á háskólastigi sem tengjast verkefninu
- Fjöldi umsókna í rannsóknarsjóði tengdir matvælarannsóknum
- Heildarvelta fyrirtækja í matvælaframleiðslu á svæðinu
- Ný fyrirtæki á sviði aukinnar verðmætasköpunar úr hráefni sem til er á svæðinu
Lokaafurð
Lokaafurð verkefnisins verður fjárhagslega sjálfbært þekkingarsetur sem fjármagnar sig að fullu í gegnum erlendar styrkveitingar og samstarfsverkefni að verkefnatíma loknum.
Verkefnastjóri
Bjarni Guðmundsson og Þórður Freyr Sigurðsson
Framkvæmdaraðili
Orkídea
Samstarfsaðilar
SASS, Landbúnaðarháskóli Íslands, matvælaráðuneytið og Landsvirkjun
Heildarkostnaður
30.500.000 kr.
Þar af framlag úr Sóknaráætlun
Árið 2020: 7.500.000 kr.
Árið 2021: 15.000.000 kr.
Árið 2022: 15.000.000 kr.
Árið 2023: 15.000.000 kr.
Árið 2024: 15.000.000 kr.
Ár
2022
Upphaf og lok verkefnis
2020-2024
Staða
Í vinnslu
Númer
203001
Verkefnið 2021:
Orkídea samstarfsverkefni var stofnað á miðju ári 2020 og starfsmenn tóku til starfa í janúar 2021. Heiti verkefnisins, Orkídea, er sprottið af orðunum orka og ídea. Undanfarna 8 mánuði hafa starfsmenn Orkídeu m.a. fengist við eftirfarandi verkefni:
- Heimsóknir til fyrirtækja, frumkvöðla og sveitarfélaga til að kynna starfsemi verkefnisins og afla tenginga og upplýsinga um frumkvöðlastarf, til að miðla upplýsingum og tengja saman fyrirtæki, frumkvöðla og stjórnsýslu.
- Skipulagning og framkvæmd ýmissa viðburða t.d. í Nýsköpunarvikunni, Málþing um græna iðngarða með SASS, alþjóðleg vefráðstefna um nýtingu jarðhita í matvælaframleiðslu og -vinnslu.
- Skýrslu skilað til ANR um Tækifæri í orkutengdri matvælaframleiðslu.
- Umsjón, leiðbeiningar, eftirfylgni og aðstoð við frumkvöðla sem tóku þátt í viðskiptahraðlinum StartupOrkídea ásamt Landsvirkjun og StartupIceland.
- Leiðbeiningar og þátttaka í umsóknum til samkeppnissjóða með frumkvöðlum og samstarfsverkefnum.
- Þátttaka í umsóknum til alþjóðlegra samkeppnissjóða t.d. Horizon Europe.
- Unnið að gerð vefjar, í samvinnu við SASS, fyrir erlenda fjárfesta á Suðurlandi. Styrkur fékkst í verkið til að fjármagna 3 mannmánuði námsmanns.
- Unnið að því að koma á fót votrýmisaðstöðu fyrir tilraunastarfsemi frumkvöðla.
- Skrif á vefsíðu Orkídeu ásamt fréttaskrifum á samfélagsmiðlasíðum verkefnisins.
- Blaðagreinar í Bændablaðið og héraðsfréttablöð.
- Þátttaka í ýmsum veffundum og ráðstefnum.
- Erindi á fundum félagasamtaka, stofnana og sveitarfélaga.
- Samvinna við önnur rannsókna- og nýsköpunarverkefni um allt land.
Skýrsla Orkídeu til ANR
taekifaeri-fyrir-orkutengda-matvaelaframleidslu-skyrsla-orkideu-juni-2021-v2Heimasíða: www.orkidea.is