
Meðfylgjandi mynd var tekin á fyrsta kynningarfundi verkefnisins en á myndinni eru auk aðstandenda verkefnisins, fulltrúar Byggðasafns Árnesinga, Sagnheima Vestmannaeyja, Sæheima Vestmannaeyja, Skálholts og Listasafns Árnesinga ásamt Þórði Frey Sigurðssyni sviðsstjóra Þróunarsviðs SASS. Auk þeirra eru á myndinni Eva Þengilsdóttir listakona og Heiða Linda Sigurðardóttir listgreina kennari sem voru með erindi á fundinum.
Á dögunum var sett af stað eitt áhersluverkefni Sókaráætlunar Suðurlands á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Það eru samtals 14 söfn og/eða sýningar á Suðurlandi sem taka þátt í verkefninu. Um er að ræða verkefni þar sem söfnin/sýningarnar hanna og þróa fræðsluefni fyrir gesti á grunnskólaaldri. Afurðinni er ætlað að efla fræðsluþátt safnanna/sýninganna sem og að efla möguleika þeirra til vaxtar, þróunar og styðja við viðkomandi safn eða sýningu. Meginmarkmið með verkefninu er að laða að gesti á grunnskólaaldri, fjölskyldur og grunnskóla. Afurðin verður hönnuð með grunnskólaaldur í huga og getur fræðsluefnið verið fjölbreytt og með ólíkar áherslur í upplifun, miðlun og fróðleik þar sem gestir geta jafnvel unnið verkefni á staðnum eða tekið þátt í því meðan á heimsókn þeirra stendur. Verkefnið tengist flestum meginþáttum í Sóknaráætlun Suðurlands og þá sérstaklega markmiðunum um að menning og listir fái aukið vægi í uppeldi og kennslu barna, sem og að auka samstarf og verkefnaþróun sem leiði til eflingar og sýnileika menningarlífs á Suðurlandi.
Vinnan við verkefnin er þegar hafin og ráðgert er að söfnin/sýningarnar kynni afurðir sínar í lok maí 2018 og í framhaldinu verður efnið aðgengilegt hjá öllum þeim sem tóku þátt.
Söfnin sem taka þátt eru:
- Byggðasafn Árnesinga
- Sagnheimar Vestmannaeyjar
- Sæheimar Vestmannaeyjar
- Skálholt
- Hveragarðurinn Hveragerði
- Skjálftinn 2008 Hveragerði
- Menningarmiðstöðin Höfn
- Listasafn Árnesinga
- Skógasafn
- Skaftfellingur
- Íslenski bærinn
- Þorbergssetur Hala í Suðursveit
- Njálurefill
- Vatnajökulsþjóðgarður
Fyrir hönd verkefnisins,
Guðlaug Ósk Svansdóttir og Ingunn Jónsdóttir, ráðgjafar og verkefnastjórar á vegum SASS