fbpx

Sóknarfæri í nýsköpun – Kynningarfundur á netinu 30. nóvember kl. 13:00-14:00.

Sóknarfæri í nýsköpun er átta vikna sunnlenskur viðskiptahraðall þar sem áhersla er lögð á verkefni sem tengjast orku, mat og líftækni, ferðaþjónustu og skapandi greinum.

Hraðlinum verður stýrt af Svövu Björk Ólafsdóttur stofnanda RATA sem jafnframt leiðir kynningarfundinn.

Hraðallinn er ætlaður frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Suðurlandi sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Sóknarfæri í nýsköpun til að komast lengra með sín verkefni.

Teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur, frumkvöðla, fjárfesta og stjórnendur fyrirtækja á Suðurlandi og víðar á ráðgjafafundum, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.

Hraðallinn fer fram að mestu leyti á netinu en teymin hittast fjórum sinnum meðan á hraðlinum stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Suðurlandi.

Kynningarfundur um hraðalinn verður haldinn í netheimum þann 30. nóvember nk. og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta og heyra allt um verkefnið

Skráning hér: https://fb.me/e/2GTWkKYLD

Verkefnið er samstarfsverkefni SASS og HFSU, styrkt af Lóu nýsköpunarsjóði landsbyggðarinnar og Sóknaráætlun Suðurlands.