Á fundi stjórnar SASS, sem haldinn var 9. janúar sl., var fjallað um fyrirhuguð áform heilbrigðisráðherra um sameiningu heilbrigðisstofnana. Eftirfarandi ályktun var samþykkt: ,,Stjórn SASS lýsir mikilli óánægju með þær hagræðingaraðgerðir sem felast í sameiningu heilbrigðisstofnana á svæðinu sem mun skerða þjónustu og fækka störfum á landsbyggðinni. Er það í hróplegri mótsögn við þá stefnu ríkisvaldsins að fjölga beri opinberum störfum á landsbyggðinni ef þess er kostur.
Stjórn SASS mótmælir harðlega þeirri ákvörðun að leggja niður vaktþjónustu á skurðdeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi sem..
mun leiða til lokunar á fæðingarþjónustu stofnunarinnar þar sem óhugsandi er talið að starfrækja fæðingardeild sem ekki er studd af fæðingarlækni á bakvakt. Í þessu sambandi ber að hafa í huga að að fæðingar á síðasta ári voru um 200 talsins auk allrar annarrar þjónustu sem fæðingardeildin veitir. Þessi þjónusta færist því til Landsspítalans með öllu því óhagræði sem því fylgir fyrir notendur þjónustunnar. Auk þess er bent á að öryggi sjúklinga og sængurkvenna getur verið ógnað vegna ótryggra samgangna að vetri til.
Stjórn SASS lýsir einnig yfir mikilli óánægju með þá ákvörðun að færa yfirráð Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja frá Vestmannaeyjum. Fordæmin sýna að sú aðferðarfræði að flytja forræði stofnana frá þjónustusvæðunum leiðir jafnan til skerðingar á þjónustu. Samgöngum við Vestmannaeyjar er enn fremur þannig háttað að til þess að komast á Selfoss þurfa Eyjamenn að ferðast í um 4 tíma.
Stjórn SASS telur einsýnt að vegna landfræðilegrar sérstöðu Vestmannaeyja og Hornafjarðar verður ekki um samrekstrarmöguleika að ræða milli þessara stofnana.
Þá leggur stjórn SASS áherslu á að sveitarfélög hafi eftir sem áður möguleika á að yfirtaka rekstur heilbrigðisstofnana með þjónustusamningum við yfirvöld sbr. þann samning sem verið hefur í gildi við Sveitarfélagið Hornafjörð.“