Nú á árinu 2012 veitir Menningarráð Suðurlands í fyrsta skipti styrki til stofnkostnaðar og rekstrar menningarstofnana á Suðurlandi. Þetta er gert á grundvelli viðauka við menningarsamning milli ríkisins og Fjórðungssambands Vestfirðinga sem undirritaður var fyrr á árinu. Áður var úthlutun þessara stofn- og rekstrarstyrkja frá ríkisvaldinu í höndum fjárlaganefndar Alþingis, en hún hefur nú hætt úthlutun á styrkjum til ýmissa stofnana og verkefna á grundvelli umsókna til nefndarinnar.
Samkvæmt samningnum fær Menningarráð Suðurlands 12,4 milljónir til ráðstöfunar árin 2012 og 2013, sem heimilt er að veita til stofn- og rekstrarstyrkja. Þetta er aðeins lítill hluti af þeirri upphæð sem ráðstafað hefur verið árlega til menningarstarfsemi og uppbyggingar á Suðurlandi síðustu árin á fjárlögum.
Hluti af því fjármagni sem fjárlaganefnd Alþingis ráðstafaði áður til menningarverkefna var nýttur í að styrkja aðra opinbera menningarsjóði eins og t.d. Safnasjóð og Húsafriðunarsjóð. Þá fékk mennta- og menningarmálaráðuneytið fjármagn til að ráðstafa til menningarstarfsemi á grundvelli umsókna sem bárust ráðuneytinu. Við þá úthlutun var einkum horft til þeirra aðila og verkefna sem vegna eðlis starfseminnar áttu ekki möguleika á styrk frá menningarráðum landshlutanna eða úr öðrum opinberum sjóðum.
Alls bárust 19 umsóknir um stofn- og rekstrarstyrki til Menningarráðs Suðurlands þegar eftir þeim var auglýst og var beðið um framlög að upphæð rúm 40 milljón. Að þessu sinni fengu 10 aðilar stuðning, samtals að upphæð 11,8 milljónir. Eru upphæðir framlagsins frá Menningarráði Suðurlands á bilinu 600 þúsund til 4 milljónir. Menningarráðið hefði gjarnan viljað hafa meira fjármagn til ráðstöfunar í þessa styrki og hefði gjarnan viljað veita bæði hærri styrki og fleiri. Það var erfitt verkefni að velja milli margra góðra umsókna, enda má ljóst vera að framlög frá fjárlaganefnd hafa í mörgum tilvikum ráðið úrslitum um rekstrarhæfni og uppbyggingu hjá menningarstofnunum á landsbyggðinni síðustu árin.
Eftirtaldir aðilar fengu stofn- og rekstrarstyrk frá Menningarráði Suðurlands árið 2012:
Fjallasaum ehf | 600.000 |
Gullkistan á Laugarvatni | 600.000 |
Sognhúsið í Gunnarsholti | 600.000 |
Kötlusetur í Vík | 1.000.000 |
Listasafn Árnesinga | 1.000.000 |
Sögusetur 1627 | 1.000.000 |
Gestastofan Þorvaldseyri | 1.000.000 |
Íslenski bærinn í Flóanum | 1.000.000 |
Veiðisafnið á Stokkseyri | 1.000.000 |
Kirkjubæjarstofa ses | 4.000.000 |
Samtals 11,8 milljónir.
Ekki verður lagt í kostnað vegna sérstakrar úthlutunarathafnar að þessu sinni. Þeim sem hlutu styrki er óskað til hamingju og allir umsækjendur fá bestu þakkir fyrir umsóknirnar og góðar óskir um gott gengi.