Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) standa fyrir opnum kynningarfundi um Uppbyggingarsjóð Suðurlands n.k. fimmtudag kl: 12:15 – 13:00. Fundurinn verður í beinu streymi á ZOOM og eru allir áhugasamir hvattir til að taka hádegið frá og kynna sér markmið, áherslur og umsóknarferli sjóðsins ásamt því að ráðgjöf SASS verður kynnt. Sjóðurinn er nú opinn fyrir umsóknir
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vorúthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands árið 2021. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileyka atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að
Aðsóknin í Hæfnhringi – stuðningur fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni, hefur farið fram úr björtustu vonum. Nú þegar 2 umferð Hæfnihringa á netinu, er að fara í gang, hafa rúmlega 40 konur skráð sig. Við munum hefja leik innan skamms í 6 hópum. Verkefnið var sett upp sem samstarfsverkefni milli atvinnuþróunarfélaga og landshlutasamtaka síðastliðið
Menntaverðlaun Suðurlands 2020, sem Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita, voru afhent í þrettánda sinn fimmtudaginn 14. janúar s.l. á árlegum hátíðarfundi Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands. Athöfnin fór fram í fjarfundi og var send út frá Fjölheimum á Selfossi. Alls bárust sex tilnefningarnar þetta árið: Magnús J, Magnússon fyrrverandi skólastjóri Barnaskólans á Eyrabakka og Stokkseyri fyrir starf
Í gær var bein útsending frá úthlutun styrkja úr Matvælasjóði en nokkur eftirvænting hefur verið eftir þessari fyrstu úthlutun sjóðsins. Við stofnun sjóðsins leggjast af Framleiðnisjóður landbúnaðarins og AVS. Það voru samtals 62 verkefni sem hlutu styrk að fjárhæð allt að 480 milljónir. Alls bárust 266 umsóknir um styrki upp á 2.7 ma.kr. Hlutverk sjóðsins
Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga hefur fjallað um tillögur fagráðs atvinnu og nýsköpunar annars vegar og fagráðs menningar hins vegar, um úthlutun verkefnastyrkja úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands. Um var að ræða síðari úthlutun sjóðsins á árinu 2020. Umsóknir voru samtals 165, í flokki atvinnu- og nýsköpunarverkefna bárust 72 umsóknir og 93 umsóknir í flokki menningarverkefna. Að þessu
Í síðust viku rann út umsóknarfrestur til að sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Mikill fjöldi umsókna barst sjóðnum eða samtals 165 umsóknir. Umsóknirnar skiptast í eftirfarandi tvo flokka, menningarverkefni samtals 93 umsóknir og atvinnu- og nýsköpunarverkefni samtals 72 umsóknir. Allir umsækjendur fá sendan tölvupóst um niðurstöðu fagráðs og stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga eigi síðar
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í seinni úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands árið 2020. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Styrkveitingar skiptast í tvo flokka, annars vegar atvinnu og nýsköpun og hins vegar menningu. Í flokki atvinnu og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á
Út er komin greining á vegum SASS um stöðu og þróun atvinnulífs á Suðurlandi, með sérstakri áherslu á ferðaþjónustuna. Í greiningunni koma m.a. fram upplýsingar um rekstrartekjur greinarinnar, fjölda starfa og hlutfall erlendra ríkisborgara í greininni – upplýsingarnar eru sundurliðaðar niður á sveitarfélög á Suðurlandi. Um miðjan mars 2020 þegar ljóst var að COVID-19 myndi