fbpx

frettir

28. janúar 2019

Menningarkort Suðurlands er nú komið út. Kortið er yfirlitskort sem jafnframt gildir sem afsláttarkort. Kortið veitir m.a. afslætti af aðgangseyri fyrir alla fjölskylduna og afslætti af vörum. Kortinu er nú verið að dreifa inn á öll heimili á Suðurlandi. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) gefa kortið út og er það unnið í nánu samstarfi við söfn

25. janúar 2019

Ráðstefnu ungmennaráða á Suðurlandi sem ber yfirskriftina Ungt fólk á Suðurlandi horfir til framtíðar. Ráðstefnan verðu haldin á Hótel Selfossi 30. – 31. janúar. Fyrri dagurinn er vinnudagur unga fólksins en ráðstefnan sjálf fyrir unga sem eldri fer fram þann 31. janúar og hefst kl. 09:45 með setningu Sigurðar Inga Jóhannssonar samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Þann dag koma saman fulltrúar

5. janúar 2019

Allt fram í desember sl. voru samningar, milli SASS og Vegagerðarinnar, um almenningssamgöngur í járnum. Sá möguleiki var uppi á borðum að almenningssamgöngur í núverandi mynd breyttust verulega. Viðræður milli SASS og Vegagerðarinnar hafa staðið yfir og málin hafa farsællega verið til lykta leidd. Á síðasta stjórnarfundi SASS kynntu formaður og framkvæmdastjóri stöðu viðræðna. Fram

21. nóvember 2018

Verkefnastjórn Sóknaráætlunar Suðurlands á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga hefur fjallað um tillögur fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar annars vegar og fagráðs menningar hins vegar, um úthlutun verkefnastyrkja úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands. Um var að ræða seinni úthlutun sjóðsins á árinu 2018. Umsóknir voru 120 talsins,  í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna bárust 51 umsókn og 69 umsóknir í

2. nóvember 2018

Ályktanir ársþings SASS í Hveragerði 18. og 19. október 2018 ÁLYKTANIR ÁRSÞINGS SASS 2018 Samgönguáætlun Suðurlands Vísað er til Samgönguáætlunar Suðurlands 2017-2026 sem kynnt var á ársþingi samtakanna 2017. Skýrslan er ákall sveitarstjórna á Suðurlandi um bætta vegi á Suðurlandi, þörf fyrir nýframkvæmdir, viðhald og bætt öryggi á vegum, betri fjarskipti, ljósleiðara sem og GSM

19. september 2018

Unnin hefur verið skýrsla um veðurfar á Suðurlandi frá árinu 2008 til 2017 af Veðurstofu Íslands fyrir Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Skýrslan byggir á mælingum úr 16 sjálfvirkum veðurathugunarstöðvum á Suðurlandi auk upplýsinga frá þremur mönnuðum veðurathugunarstöðvum. Um margt áhugaverðar upplýsingar er að ræða, þar sem gögn þessi hafa ekki verið teknin saman áður fyrir

17. september 2018

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um lán og lánatryggingar í Svanna-lánatryggingasjóð kvenna. Umsóknarfrestur er til og með 29.10.2018 og má nálgast umsóknir á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is Eingöngu fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um lánatryggingu.   Einnig  er gerð er krafa um að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði

14. september 2018

Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands: Að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi Að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi Að styðja við atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa

12. september 2018

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum og Lögreglustjórinn á Suðurlandi hafa í sameiningu látið gefa út upplýsingabækling um hvert fólk geti leitað búi það við ofbeldi. Bæklingurinn ber heitið „Býrð þú við ofbeldi“ og er texti hans á íslensku, ensku og pólsku. Útgáfan er liður í forvarnarstarfi lögreglunnar gegn heimilisofbeldi og veitir mikilvægar upplýsingar um hver einkenni ofbeldis