fbpx

 

Í vikunni rann út umsóknarfrestur til að sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Alls bárust sjóðnum 86 umsóknir, skiptast umsóknir í eftirfarandi flokka, menningarverkefni  og atvinnu- og nýsköpunarverkefni.  Í flokk menningarverkefna bárust 63 umsóknir og 23 umsóknir í flokka atvinnu- og nýsköpunarverkefnum. 

Allir umsækjendur munu fá sendan tölvupóst um  úthlutun sjóðsins eigi síðar enn 6. nóvember nk.