Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kynnti þann 31. maí 29 verkefni sem fá úthlutun úr Lóu-nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina. Hlutverk styrkjanna er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra. Verkefni í öllum landshlutum hljóta styrk og nema hæstu styrkir 10 milljónum króna. Verkefnin sem hljóta styrk eru af margvíslegum toga og til marks um fjölbreytt atvinnulíf um land allt. Sem dæmi má nefna styrk til uppbyggingar velferðartæknimiðstöðvar á Norðurlandi eystra, þróunvettvangs sjávarlíftækni í Vestmannaeyjum, nýsköpun í vinnslu skógarafurða á Austurlandi og uppbyggingu vistkerfis orkuskipta á Vestfjörðum,
„Fjöldi umsókna um styrki úr Lóu fór fram úr okkar björtustu vonum, en gefur jafnframt hátt og skýrt til kynna hversu mikil gróska er í nýsköpunarverkefnum um allt land. Það er nauðsynlegt að styðja við þennan slagkraft og það er gott að geta greint frá því að Lóa er komin til að vera næstu ár. Ég óska styrkþegum til hamingju og hlakka til að sjá verkefnin vaxa og dafna“ segir Þórdís Kolbrún.
Styrkirnir voru auglýstir í febrúar en ákveðið var að hækka þá upphæð sem til ráðstöfunar er um helming. Þetta var gert í ljósi mikillar aðsóknar, en alls bárust 236 umsóknir í Lóu. Í þessari fyrstu úthlutun fá verkefnin styrki sem nema rúmum 147 milljónum króna. Matshópur fór yfir allar umsóknir og gerði í kjölfarið tillögur til ráðherra um veitingu styrkja. Ráðherra og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, formaður matsnefndar Lóu, greindu frá styrkveitingum í beinni útsendingu í dag á vegum Nýsköpunarviku.
Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar hér á landi. Hún styður einnig við annan mikilvægan stuðning á vettvangi nýsköpunar hringinn í kringum landið, svo sem sóknaráætlun landshlutanna og byggðaáætlun.
Verkefni sem fengu nýsköpunarstyrk fyrir landsbyggðina úr Lóu
Velferðatæknimiðstöðin |
Norðurland eystra |
Velferðartæknimiðstöð á Norðurlandi eystra (Veltek) |
10.000.000 |
Þekkingarsetur Vestmannaeyja (ÞSV) |
Suðurland |
Vettvangur sjávarlíftækni á Íslandi |
10.000.000 |
Textílmiðstöð Íslands og Þekkingarsetur á Blönduósi |
Norðurland vestra |
Uppbygging TextílLabs og -Klasa |
9.000.000 |
Fóðurverksmiðjan Laxá |
Norðurland eystra |
Þróun á lífplasti úr Cyanobakteríum |
8.000.000 |
Blámi, Eimur og Orkídea |
Allt landið |
Nýsköpunargarður: Stafrænn vettvangur fyrir nýsköpun í sjálfbærni- og orkumálum |
8.000.000 |
Páll Marvin Jónsson fyrir óstofnað sjálfseignarfélag |
Suðurland |
Ölfus Cluster, þekkingarsetur |
7.000.000 |
Blábankinn – Samfélagsmiðstöðin á Þingeyri |
Vestfirðir |
Blábankinn – nýsköpun á Vestfjörðum |
7.000.000 |
Eimur |
Norðurland eystra |
Hringrás nýsköpunar á Norðurlandi |
7.000.000 |
Green Fuel ehf. |
Norðurland eystra |
Kolefnisfrítt eldsneyti úr vistvænni orku |
6.000.000 |
Skógarafurðir ehf |
Austurland |
Tæknisögunarmylla fyrir íslenskar skógarafurðir |
6.000.000 |
Breið þróunarfélag ses. |
Vesturland |
Nýsköpunar- og samfélagsskipið AK-Breið |
6.000.000 |
True Westfjords |
Vestfirðir |
D-styrktur Dropi – Frá hæstu hæðum að dýpstu djúpum |
6.000.000 |
Blámi |
Vestfirðir |
Vistkerfi orkuskipta á Vestfjörðum |
5.000.000 |
Eldey Aqua ehf |
Vestfirðir |
Eldey Aqua þararækt |
5.000.000 |
Taramar Seeds ehf (TMS) |
Suðurnes |
ICEBLU – Lífvirkar húðvörur úr örþörungum |
5.000.000 |
Djúpið, félag um frumkvöðlasetur |
Vestfirðir |
Djúpið, félag um nýsköpunarumhverfi á Vestfjörðum |
4.000.000 |
Capretto ehf. |
Norðurland eystra |
Hagnýting hugverka til eflingar atvinnulífs á landsbyggðinni |
4.000.000 |
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga |
Suðurland |
Landsbyggðin.is kallar |
4.000.000 |
Hallormsstaðaskóli |
Austurland |
Tilraunaeldhús; uppbygging og þjónusta |
4.000.000 |
Yggdrasill Carbon ehf. |
Austurland |
Þróun og markaðssetning vottaðra kolefniseininga |
3.500.000 |
GeoSilica Iceland ehf |
Suðurnes |
Möguleikar á nýtingu jarðhitakísils frá Reykjanesvirkjun |
3.000.000 |
Celia Lobsang Harrison |
Austurland |
Herðubreið – miðstöð fyrir nýsköpun á Seyðisfirði |
3.000.000 |
VETNIS ehf |
Suðurnes |
Grænt varaafl |
3.000.000 |
Norðursigling hf. |
Norðurland eystra |
Vistvænni skrúfur – lækkað kolefnisspor |
3.000.000 |
Upplifunargarður Borgarnesi |
Vesturland |
Upplifunargarður og LazyTown studio í Borgarnesi |
3.000.000 |
Háskólafélag Suðurlands ehf |
Suðurland |
Frumkvöðlasetur Hfsu og Atorku |
2.500.000 |
ALGÓ ehf |
Vesturland |
Sæmeti – bragðmögnuð fæðubót |
2.000.000 |
Hacking Hekla |
Allt landið |
Lausnamót á landsbyggðinni |
2.000.000 |
Markaðsstofa Norðurlands |
Norðurland eystra |
Taste North Iceland |
1.500.000 |
Nánari upplýsingar má finna hér.