fbpx

 

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) auglýsa laust til umsóknar starf verkefnastjóra með áherslu á umhverfismál. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða, við þróun og framkvæmd fræðslu- og kynningaráætlunar um umhverfismál með sérstakri áherslu á úrgangsforvarnir. 

Verkefnastjóri mun vinna í nánu samstarfi með sveitarfélögum á Suðurlandi, sorphirðuaðilum og Umhverfisstofnun (Umhverfis- og orkustofnun frá 1. janúar nk.) ásamt því að starfa náið með umhverfissérfræðingi og kynningarfulltrúa SASS. Starfið er hluti af aukinni áherslu á umhverfismál hjá sveitarfélögunum á Suðurlandi með stuðningi umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis.  

Hlutverk verkefnastjóra: 

  • Útbúa fræðslu-, samskipta- og kynningaráætlun á sviði umhverfismála. 
  • Þróun og umsjón viðburða. 
  • Verkefnaþróun og fjármögnun verkefna í samstarfi við hagaðila. 

Hæfniskröfur: 

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. 
  • Reynsla af verkefnastjórnun og/eða kynningarmálum er kostur. 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. 
  • Góð tölvukunnátta og færni í samskiptum, bæði í ræðu og riti. 
  • Þekking á sunnlensku samfélagi og áhugi á að efla tengslanet. 
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku. 

Kjör og starfsaðstæður: 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Starfshlutfall er 100% og starfsaðstaða verður á Suðurlandi. Ráðningartímabilið er 12 mánuðir með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Umsóknarfrestur og ferli: 

Umsóknarfrestur er til og með 6. október 2024. Umsókn skal skilað stafrænt á Alfreð (www.alfred.is) og henni skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni sinni til að takast á við starfið. Umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. 

Nánari upplýsingar veitir: 

  • Þórður Freyr Sigurðsson, sviðsstjóri þróunarsviðs SASS (thordur@sass.is), sími: 692-9030.