SASS hefur umsjón með Uppbyggingarsjóði Suðurlands sem veitir verkefnastyrki á sviði nýsköpunar, menningar og atvinnuþróunar á Suðurlandi og er hluti af Sóknaráætlun Suðurlands. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári, að vori og hausti. SASS veitir einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarfélögum á Suðurlandi ráðgjöf á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála. Netföng og símanúmer ráðgjafa má finna hér
ÚTHLUTUNARNEFND:
Við mat á umsóknum skipar stjórn SASS í fagráð sem fer yfir umsóknir og skilar tillögum til stjórnar. Þegar úthlutun hefur verið kunngjörð er um að ræða endanlega niðurstöðu. Ekki er hægt að fara fram á endurmat á einstökum umsóknum. Sjá nánar upplýsingar um úthlutunarreglur og mat á umsóknum.
FAGRÁÐ:
Fagráð menningarstyrkja:
- Inga Lára Baldvinsdóttir, fyrrv. safnvörður myndasafns Þjóðminjasafns Íslands
- Marteinn Steinar Þórsson, kvikmyndagerðarmaður
- Inga Jónsdóttir, fyrrv. safnstjóri listasafns Árnesinga og listfræðingur
- Varamaður: Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður Bandalags íslenskra listamanna
Fagráð atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkja:
- Guðmundur H. Gunnarsson, nýsköpunarstjóri félagsins Skinney-Þinganes hf.
- Oddný Steina Valsdóttir, rekstrarráðgjafi hjá RML
- Bergsteinn Einarsson, eigandi og stjórnarmaður Set ehf.
- Varamaður: Helga Björk Ólafsdóttir, framkvæmdarstjóri leikskólans Sóla
Fáðu nánari upplýsingar hjá ráðgjafa SASS